Monday, March 22, 2010

Neyðin kennir naktri konu að klippa

Ég er frekar stressuð týpa og var ekki alveg viss um að ég legði í að snurfusa Magga þegar hann bað mig um það... En því ekki að prófa? Það er alltaf hægt að raka allt af ef eitthvað klikkar...

Magnús hinn hárfagri, kominn tími á snyrtingu?
Hálfnað verk þá hafið er. Telst það með að vera með í Mottumars þegar maður er með alskegg? Hvað finnst ykkur?
Magnús hinn snyrtilegi
Þarna spöruðust einhverjar krónur, nú er bara að bíða eftir "viðbrögðum á götunni"...
Og já, í hvað á þá að eyða krónunum?
Pin It

8 comments:

  1. Flott hjá þér kona góð! M.a.s Ingó ofurklippari var að fíla þetta!!Og nú geturu eytt krónunni í föndurbækur ;o)

    ReplyDelete
  2. Vá flott! Ég held ég myndi ekki geta gert'etta svona vel... schnilld :)
    segi sama og Erna... Föndurbækur! hehe

    kv.
    Berglind Z

    ReplyDelete
  3. Nei mér finnst að hann þurfi að raka allt nema mottuna svo þetta sé mottumars ;) hehe
    En geðveikt flott klipping hjá þér :)

    kv. Kata

    ReplyDelete
  4. Glæsilegt hjá þér!! Ég myndi sjálf aldrei þora þessu hahaha, en þú ert hetja og ekki af ástæðulausu! Kallinn bara flottur!

    ReplyDelete
  5. Glæsilegt, ég held þú sért svona kona sem getur allt..!

    ReplyDelete
  6. Glæsilegt! Ætla að sýna Óskari þetta svo hann fari nú að hvíla kívíklippinguna sína.
    Ég myndi fara og fá mér búlluborgara í tilefni dagsins. En það er líka bara af því að ég hef ekki fengið einn slíkann í háa herrans tíð!
    Annars eru föndurbækur/matreiðslubækur góður hlutur að eiga. Ég er að fara að byrja að vesenast við vattarsaum...á núna nál og leiðbeiningabók...vantar bara garn og þá verð ég klár :)

    ReplyDelete
  7. Ég spyr bara: varstu nakin þegar þú klipptir hann? ;)
    Óháð því þá er þetta vel gert! En ég held að mottan mundi fara mun betur með þessari heima-klippinug :)
    Og hiklaust þá ætti seðillinn að fara í eitthvað föndur!

    ReplyDelete

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...