Tuesday, March 23, 2010

Vínyl-dúkar

Mér leiðist svo borðstofuborðið mitt. Það er svo fullorðinslegt, stórt, dökkbrúnt og eiginlega bara dull. En mér finnst það aðeins meira "ég" núna, bjartir litir og aðeins of skrautlegt :) (ekki satt?) Loksins rakst ég á ágætis vinyldúk, hann fékkst í Rúmfó... það er ekki auðvelt að finna vel út lítandi dúk, ég get alveg sagt ykkur það.



Hér eru nokkrir linkar með hugmyndum fyrir vinyldúka

Það setur svip á dúkinn að setja smá kant á hann
Mig langar svolítið til að gera e-ð svipað við náttborðin mín

og hér líka, stólarnir eru æði:
Hér eru æðislegir stólar sem Dana er búin að klæða með dúk

Það er hægt að sjá á síðunni hvernig þetta er gert. Hér er búið að klippa krúttlegan kant og svo sauma hann á hornunum svo hann lítur rosa vel út:
Að lokum er hér eitt æðislegt frá Color Me Katie
Hún setti glæran dúk yfir litskrúðugan pappír, þvílík litadýrð :)


Ef þið eruð í vandræðum með krumpur eða ljót brot í dúknum þá eru hér ráð til að laga það
(Minn dúkur kom svolítið beyglaður upp úr pokanum, þarf að laga það...)
Pin It

4 comments:

  1. Úúú! Sætur!

    Finnst æði doppótti dúkurinn á túrkís borðinu!
    Væri til í svona í eldhúsinu mínu :-)

    ReplyDelete
  2. Jú, mér finnst hann ferlega mikið "þú" :) En er ekki hægt að fá bara glæran dúk? Væri eflaust ferlega skemmtilegt að geta notað bara hvaða efni sem maður vill undir glæran dúk :)

    ReplyDelete
  3. Þetta er æðislega flott og kemur vel út með dökka viðnum. OF skrautlegt er ekki til.

    ReplyDelete
  4. Sniðug þessi með litríka pappírinn. Það væri líka hægt að setja blaðaúrklippur eða fínar myndir undir glæra dúkinn...

    ReplyDelete

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...