Vitið þið um gott orð fyrir
garland, hmmm? Ég giska á að María prófarkalesari komi með eitthvað sniðugt ;)
Ég er of tóm í hausnum í dag, en eitt er víst að þessir "garlandar" eru fallegir:

Þessi minnir mig á himnasæng
Feltkúlur á þræði

Þessi á kannski ekki alveg heima hér, en mér fannst
ljósaskermirnir svo flottir svona saman að ég varð að skella þeim með...

Mér finnst full væmið að hafa "LOVE" en mér finnst fallegt
hvernig stafirnir eru þræddir á borðann
Ég hef séð puncher-a sem gera svona kant, kannski að ég fari í búðaráp á morgun áður en ég mæti í mömmuhittinginn..?
Nú styttist í að við flytjum og ætli ég búi ekki til sniðuga
garlanda bráðum :)
engar tillögur komnar.. ég á heldur engar, en mér finnst blómin úrefninu sérstaklega sæt.
ReplyDelete