Eins og margir vita er ég frekar hekl-óð. Í gær var verið að kynna nýja heklbók í Litlu prjónabúðinni svo ég dreif mig þangað. Bókin heitir Þóra - heklbók og þó ég hafi ekki keypt hana í gær þá á hún eftir að enda í bókahillunni minni í náinni framtíð því að í henni eru margar uppskriftir sem ég verð að eignast, til dæmis þessar:
Kannski ég eigi svo eftir að gefa út mína eigin heklbók einhverntíman... hmm?
Já, hún Tinna mín er algjör snillingur.
ReplyDeleteÉg er bara búin að fletta grófu uppkasti af bókinni, en hlakka mikið til að sjá hana fullgerða.
María Kristín.
En spennandi :) hafði ekki heyrt af þessari bók.
ReplyDeleteÞú ert ekki sú eina sem pælir í heklbókagerð :)